Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Miðaverð á HM mun hærra en aðdáendur eigi að venjast

Ferðamönnum sem lögðu leið sína til Bandaríkjanna fækkaði í fyrra á milli ára, þótt þeir hafi aldrei verið fleiri á heimsvísu. Samdrátturinn nam rúmum fimm prósentum. Margir vona að HM í fótbolta laði ferðamenn til landsins en þar er sá hængur á að miðaverð þykir svimandi hátt. Fjármálaráðgjafi segir að það sé mun hærra en knattspyrnuáhugafólk um allan heim eigi að venjast. FERÐAMÖNNUM FÆKKAÐ UM RÚMLEGA 5 PRÓSENT Ferðaþjónustufyrirtæki í sólskinsríkinu Flórída fara ekki varhluta af fækkun ferðamanna. Elina Weisberg, eigandi Gator Park, segir gestum frá Evrópu og Kanada snarfækka. „Um 30-50 prósent.“Kevin Rust er kráareigandi. Hann segir reksturinn finna fyrir Trump-lægðinni, eins og hann orðar það.„Ég get sagt ykkur að nú finnum við fyrir Trump-lægðinni vegna stefnumála hans og stríðsin
Miðaverð á HM mun hærra en aðdáendur eigi að venjast

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta