Hakakrossar hafa verið krotaðir á útilistaverkið Partnership sem stendur við Sæbraut í Reykjavík. Verkið er í eigu Listasafns Reykjavíkur en nýlega var búið að gera við það. Safnstjóri segir þetta leiðindamál og til standi að bregðast skjótt við þegar fólk snýr aftur til vinnu á morgun.