„Verk Jóhanns Eyfells eru um margt einstæð og að eignast mörg þeirra er okkur hér á bæ afar dýrmætt. Listamaðurinn fór víða í sínum djúpu pælingum um himingeiminn og eðlisfræði og þess sér stað í verkum hans,“ segir Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands.