Í kvöld kemur í ljós hvaða tíu lönd bætast í hóp þeirra sem keppa til úrslita í Eurovision á laugardaginn. Keppnin er að þessu sinni haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín.Belgía, Finnland, Grikkland, Ísrael, Litáen, Moldóva, Pólland, Serbía og Svíþjóð eru nú þegar komin áfram en í kvöld keppa: * Albanía * Armenía * Ástralía * Aserbaídsjan * Búlgaría * Danmörk * Kýpur * Lettland * Lúxemborg * Malta * Noregur * Rúmenía * Sviss * Tékkland * Úkraína Sýnt verður frá keppninni í beinni útsendingu á RÚV sem hefst klukkan 19:00. Guðrún Dís Emilsdóttir lýsir keppninni.