Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Umfangsmesta árásarhrina Rússa til þessa

Rússar hafa skotið rúmlega 1.500 drónum og 56 flugskeytum að Úkraínu síðustu tvo daga. Þetta er umfangsmesta árásarhrina Rússa á svo skömmum tíma frá upphafi stríðsins. Árás Rússa í gær var einnig ein sú lengsta í stríðinu hingað til.Forseti Úkraínu segir áframhaldandi stuðning bandalagsríkja vera forsendur þess að nær öllum drónunum hafi verið grandað.Sprengjum hefur rignt yfir Úkraínu í dag og í gær og flestum þeirra er beint að höfuðborginni Kiyv. Að minnsta kosti átta voru drepnir í borginni í dag, þar á meðal þrettán ára drengur, og 44 til viðbótar særðir, að sögn úkraínskra yfirvalda.Aðeins örfáir dagar eru síðan Bandaríkjaforseti sagði að friðarsamkomulag væri handan við hornið. Rússlandsforseti sagði líka á dögunum að stríðinu lyki senn.Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði árási
Umfangsmesta árásarhrina Rússa til þessa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta