Sjómannasamband Íslands segir að leita þurfi til ríkissáttasemjara ef ekki tekst að blása lífi í viðræður við Landssamband smábátaeigenda um kjarasamning smábátasjómanna. Þeir hafa verið samningslausir í tólf ár.„Staðan er einkennileg. Það eru engar samræður eða viðræður í gangi,“ segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands. Eftir að samningur náðist við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi um stærri skipin árið 2024 hafi viðræður farið af stað en svo runnið út í sandinn.Nýr formaður, Kjartan Páll Sveinsson, tók við stjórnartaumunum hjá Landssambandi smábátaeigenda í haust og segist Valmundur hafa vonast til þess að hjólin færu þá að snúast.„Síðan hefur í raun og veru ekkert skeð,“ segir Valmundur. Stjórn sjómannasambandsins hafi samþykkt ályktun í gær þar sem hún krafðist þ