Ungir sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum, eða svokallaðir Eyverjar, voru gómaðir við að vinna skemmdarverk á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Eyjum. Oddviti Miðflokksins í Eyjum segist hafa gaman af ákveðnum kýtingi í kosningabaráttu en að þarna hafi verið fulllangt gengið.