Rúmenum hefur fjölgað mest meðal erlendra ríkisborgara síðan í desember, og þar á eftir eru Úkraínumenn og Spánverjar. Þetta kemur fram í samantekt Þjóðskrár.Íslendingum fjölgaði um 1.180 frá 1. desember 2025, eða 0,4%, og erlendum ríkisborgurum um 593, eða 0,7%. Þar af voru 188 frá Rúmeníu.Alls eru rúmlega 84.500 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi, eða tæplega 20,5% af heildaríbúafjölda. Þar eru Pólverjar hlutfallslega flestir, eða 6,4% af heildarfjölda.RÚV / Ragnar Visage