Árni Snævarr, höfundur ævisögu Gaimards, Maðurinn sem Ísland elskaði, segir að Íslendingaboðið í Kaupmannahöfn 1839 marki ákveðin tímamót í sögu þjóðarinnar. Gaimard sé virtur og vel tengdur maður sem sýni Íslendingum einstakan heiður með velvild sinni.Árni var einn viðmælanda Ástu Andrésdóttur í útvarpsþáttunum Aldrei kærri gestur á Rás 1. SÝNDI ÍSLANDI MIKINN HEIÐUR „Þarna kemur þessi maður sem er svona merkilegur. Og hann tekur þeim ekki bara sem jafningum, heldur heiðrar þá. Og hann heiðrar Ísland og sýnir Íslandi þessa ótrúlegu viðurkenningu, að gefa út allar þessar bækur með þessum stórkostlegu teikningum af Íslandi,“ segir Árni.„Ég er sannfærður um að Gaimard hafi átt verulegan þátt, algjörlega óbeinan, í íslensku sjálfstæðisbaráttunni, með því að efla sjálfstæði Íslendinga, segj