Dómsmálaráðherra segir að ekki komi til greina að stefna lífi annarra í hættu til þess að nálgast jarðneskar leifar manns sem féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Samkvæmt óháðri úttekt væri vænlegra að beita handafli við leitina, sem myndi þýða að björgunarmenn þyrftu að síga ofan í sprunguna. UM 35 METRA DJÚP SPRUNGA Lúðvík Pétursson vann við að fylla í sprungu við einbýlishús í Grindavík í byrjun janúar 2024, þegar hann féll ofan í sprunguna. Talið er að sprungan hafi verið um þrjátíu og fimm metra djúp, þar af tuttugu metra djúpt vatn. Hans var leitað í þrjá daga við erfiðar aðstæður en án árangurs. Yfir tvö hundruð björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni.„Ég held að við séum öll á þeirri blaðsíðu að hugsa til þess með mikilli sorg, að svona skyldi hafa farið, þetta skelfileg