Wes Streeting hefur ákveðið að segja af sér sem heilbrigðisráðherra Bretlands. Þetta gæti merkt að hann freisti þess að verða næsti forsætisráðherra Bretlands. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Streeting væri að undirbúa afsögn sína. Hann ætli að freista þess að fá stuðning þess fjölda þingmanna sem þarf, 81, til að skora Starmer á hólm í leiðtogakjöri. Fjórir undirráðherrar sögðu af sér í gær og yfir 80 þingmenn hvöttu Starmer til að segja af sér. Þá voru um 100 þingmenn sem sendu frá sér yfirlýsingu honum til stuðnings.Fréttin verður uppfærð.