Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ruddust inn og réðust á húsráðanda – „Hann var í sjáanlegu áfalli“

Tveir menn eru grunaðir um að hafa ráðist á mann í heimahúsi í Kópavogi í gær og rænt hann. Annar var handtekinn í gærkvöld, skömmu eftir árásina, en lögreglan veit hver hinn er, segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Það eigi líka við um konu sem var með í för.Mennirnir ruddust inn á heimili á neðri hæð í fjölbýli við Lómasali í Kópavogi skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gærkvöld. Þeir og sá sem þeir réðust á eru allir karlar á fertugsaldri og Skúli segir þá þekkjast eitthvað.Mennirnir stálu meðal annars handtösku, heyrnartólum, íþróttatösku og snjallúri. Þeir yfirgáfu vettvang í bíl og lögreglu tókst að hafa hendur í hári annars þeirra skömmu síðar. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu.Ekki hafi tekist að hafa hendur í hári hins mannsins en lögregla veit hver hann og konan eru.
Ruddust inn og réðust á húsráðanda – „Hann var í sjáanlegu áfalli“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta