Lögreglan rannsakar rán og minniháttar líkamsárás í Salahverfi í Kópavogi í nótt þar sem kona og tveir menn eru sögð hafa ráðist á mann inni á heimili hans. Konan er sögð hafa bankað upp á en þegar húsráðandinn opnaði dyrnar ruddust inn tveir karlmenn sem réðust á hann og rændu hann.