Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forsætisráðherrann segir einnig af sér

Evika Silina, forsætisráðherra Lettlands, tilkynnti um afsögn sína í morgun og fer því sömu leið og varnarmálaráðherrann fyrr í vikunni. Forseti landsins ætlar að hitta alla leiðtoga stjórnmálaflokka í dag í þeirri von að hægt verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn.Mið-hægri flokkur Silinu, Ný samstaða, missti meirihlutann í þinginu þegar Framfaraflokkurinn dró sig út úr samstarfinu með afsögn Andris Sprüds, varnarmálaráðherra. Hann hafði verið gagnrýndur fyrir viðbrögð sín við því hvernig Lettland hefur orðið á milli í drónahernaði Rússa og Úkraínumanna.Undanfarið hafa nokkrir drónar hrapað til jarðar í aðskildum atvikum í Lettlandi og herinn verið gagnrýndur fyrir að bregðast ekki nægilega fljótt við og skjóta þá niður. Sprüds sagðist með afsögninni vilja koma í veg fyrir að herinn dragist
Forsætisráðherrann segir einnig af sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta