Yfir 16.550 hafa skilað inn atkvæði sínu í sveitarstjórnarkosningunum til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Töluvert fleiri hafa greitt atkvæði utan kjörfundar en á sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosningum og aðsókn hefur verið mikil síðustu daga, segir sýslumaður.Búast má við að einhverjir séu á faraldsfæti og lengi jafnvel helgina vegna uppstigningardags í dag. „Við erum að sjá rúmlega 50% aukningu síðan í sveitarstjórnarkosningunum 2022,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu. Kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu sé almennt minni í sveitarstjórnarkosningum en í öðrum kosningum.Tæplega 24 þúsund greiddu atkvæði utan kjörfundar í síðustu sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum. MIKIL AÐSÓKN EN LÍTIL BIÐ Um 3.200 greiddu atkvæði hjá sýslumanninum