Það kom til skoðunar að Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, yrði við opnun íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 6. maí síðastliðinn. Það varð þó úr að hún færi ekki.„Forseta þótti ekki við hæfi að vera viðstödd þegar fyrir lá þessi skýra afstaða frá ráðherra í ríkisstjórn Íslands,“ segir í svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu. Tekið er fram að afstaða ráðherra hafi þó ekki ráðið úrslitum.Rússland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í ár. Ákvörðunin hefur verið mjög umdeild og Logi Már Einarsson menningarráðherra studdi ákall um endurskoðun hennar. Evrópusambandið dró til baka fjárstuðning og mótmælendur hafa reynt að meina fólki að komast að rússneska skálanum.Halla var á Ítalíu í vinnuferð 3. til 5. maí þar sem hún fundaði meðal annars með forseta Ítalíu og páfanum.Í svari forsetaemb