Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég er alltaf að reyna að skrifa og sýna hvernig samfélagið er brotið“

Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari persónueinkennum en þar rúmast.Í hæfilegu magni er fyrsta ljóðabók höfundar en árið 2022 bar hún sigur úr býtum í handritasamkeppni Forlagsins með sögunni Getnaði. Melkorka Ólafsdóttir ræddi við Heiðu í Víðsjá á Rás 1. FÆR EKKI AÐ VERA ALLT LITRÓFIÐ AF SJÁLFRI SÉR „Þessi titill kemur úr fyrsta ljóðinu, þar sem ljóðmælandinn er að útskýra hvernig hún fær að vera til í samfélaginu í hæfilegu magni,“ útskýrir Heiða. Út á við virðist ljóðmælandinn njóta allra þeirra forréttinda sem samfélagið býður upp á en í ljós kemur að hún fær ekki fyllilega að ver
„Ég er alltaf að reyna að skrifa og sýna hvernig samfélagið er brotið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta