Andríj Jermak, fyrrverandi starfsmannastjóri Úkraínuforseta, hefur verið handtekinn sakaður um peningaþvætti. Samkvæmt fréttum Reuters ákvað embætti sérstaks saksóknara gegn spillingu að handtaka Jermak.Hann hefur borið af sér allar sakir um að hafa þvættað tæpar níu milljónir bandaríkjadala í tengslum við byggingu lúxusíbúða í útjaðri höfuðborgarinnar Kyiv.Saksóknari rannsakar einnig tengsl Jermaks við umfangsmikið spillingarmál sem skekið hefur ríkisorkufyrirtækið Energoatom. Jermak sagði af sér í nóvember sem nánasti samstarfsmaður Volodymyrs Zelensky forseta þegar upp komst um spillingarmálin.