„Á Blikastaðalandi verður stór og mikil byggð. Við erum að gera ráð fyrir að þarna verði um 3600 íbúðir enda svæðið mjög stórt. Heildarstærð landsins er 98 hektarar. Það er gert ráð fyrir að þetta verði blanda af sérbýlum og fjölbýlum, 20 prósent sérbýli og 80 fjölbýli, og að fullbyggt verði hverfið um átta til níu þúsund íbúar,“ segir Þóra Hjaltested, sem er bæjarlögmaður og settur bæjarstjóri í Mosfellsbæ, um uppbyggingu á Blikastaðalandinu svokallaða sem er í eigu Arion banka.Þetta er 98 hektara óbyggt landsvæði sem liggur á milli Reykjavíkur og byggðarinnar í Mosfellsbæ. Þóra segir að með byggingu þessa nýja hverfis skapist loksins tenging á milli þessara sveitarfélaga.Um er að ræða eitt stærsta, ef ekki stærsta, óbyggða byggingarland á Íslandi í dag eins og fjármálagreinandinn Alexand