Allir flokkar nema Flokkur fólksins, Sósíalistaflokkur Íslands og Okkar borg fjalla um menningu í sinni stefnu fyrir sveitarstjórnarkosningar á laugardag. Allir sem eru með stefnu eru sammála um að styðja þurfi menningarlíf en vilja, eðlilega, fara mislangt í því.