Reykjavík er frábær borg. Þótt hún sé enn ung hafa orðið framfarir á lífsgæðum borgarbúa á síðustu áratugum sem eru sennilega með þeim mestu í heiminum á því tímabili. Undir forystu jafnaðarfólks hefur tekist að breyta borg sem var rekin af geðþóttaákvörðunum og með valdboði í þjónandi stjórnsýslu.