Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Karlmaður dæmdur fyrir fjölda kynferðisbrota gegn tugum barna

Fangavist karlmanns á sextugsaldri hefur verið lengd um tvö ár eftir að hann var í gær dæmdur í héraðsdómi í Sviþjóð fyrir margvísleg kynferðisbrot gagnvart 44 börnum. Honum er einnig gert að greiða þeim átta milljónir sænskra króna í bætur, samkvæmt fréttum sænskra miðla.Maðurinn var sakfelldur fyrir 59 nauðganir og tugi annarra kynferðisbrota gegn börnunum. Hann hafði áður verið dæmdur til sex ára fangavistar fyrir kynferðisbrot en hámarksrefsing fyrir slík brot er átta ára fangelsi. Maðurinn komst í samband við börnin gegnum samfélagsmiðla með því að þykjast vera stúlka á táningsaldri.
Karlmaður dæmdur fyrir fjölda kynferðisbrota gegn tugum barna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta