Innviðaráðuneytið hefur fallist á beiðni Vestmannaeyjabæjar um áframhaldandi styrk til áætlunarflugs milli lands og Eyja til næstu mánaðamóta. Frá þessu er greint á fréttavefnum Tígli ásamt því að í framhaldinu muni Vegagerðin ræða við Norlandair um áframhaldandi flug með óbreyttu sniði, eða tvær ferðir á dag.Nauðsynlegt sé að tryggja áframhaldandi flugsamgöngur í ljósi þess að ekki hefur enn verið opnað fyrir fullar áætlunarsiglingar um Landeyjahöfn.Tígull segir jafnframt að erfiðara og tímafrekara hafi verið að fá haffærnisskírteini fyrir Herjólf III en áætlað var. Einkum tefji bið eftir svörum um afgreiðslutíma íhluta fyrir mikilvægan öryggisbúnað, þar sem gerðar voru ríkari kröfur en Vegagerðin hafði áætlað.