Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn til Beijing þar sem hann fundar með Xi Jinping forseta Kína í dag og á morgun. Efnt var til glæsilegrar móttökuathafnar þar sem Xi ávarpaði Trump og velti fyrir sér hvort Bandaríkin og Kína gætu bætt samskipti sín þannig að komist verði hjá Þúkýdídesar-gildrunni svokölluðu, sem lýsir þeirri spennu sem myndast getur þegar rísandi veldi ógnar stöðu þess sem fyrir er og leiðir af sér stríð þótt hvorugt vilji það. Xi sagði ríkin fremur eiga að vinna saman en vera keppinautar. Það tryggi hagsæld og hagsmuni heimsins alls. Trump sagði í sinni ræðu heiður að vera vinur Xis, þeim hefði ávallt tekist að leysa ágreiningsefni í bróðerni. Jafnframt hlakkaði hann til viðræðnanna sem myndu leiða af sér betri samskipti ríkjanna en nokkru sinni fyrr. Búist er við a