Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fulltrúar Líbanons og Ísraels hittast til viðræðna þegar styttist í endalok viðkvæms vopnahlés

Sendinefndir Ísraelsríkis og Líbanons mætast til tveggja daga friðarviðræðna í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna í dag.Líbanir sækjast helst eftir að ákvæði vopnahléssamkomulagsins, sem rennur út á sunnudag, verði fest í sessi hefur AFP-fréttaveitan eftir ónafngreindum embættismanni. Brýnast sé að stöðva dauða og eyðileggingu af hálfu Ísraela. Vopnahléð hófst 17. apríl, var framlengt viku síðar og síðan þá hefur Ísraelsher drepið á fimmta hundrað manns samkvæmt upplýsingum líbanskra yfirvalda. Þau segja yfir 2.800 hafa verið drepna í atlögum Ísraela frá því í marsbyrjun, þar á meðal minnst 200 börn. Hezbollah-hreyfingin segir liðsmenn sína meðal fallinna. Þetta eru þriðju viðræður fulltrúa ríkjanna og verða haldnar í húsakynnum utanríkisráðuneytisins í Washington, en hvorki ráðherrann Ma
Fulltrúar Líbanons og Ísraels hittast til viðræðna þegar styttist í endalok viðkvæms vopnahlés

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta