Það hitnaði í kolunum í Kastljósi þegar núverandi og fyrrverandi formaður Þingvallanefndar tókust á um fyrirhugaða stórtónleika á svæðinu. Tónleikarnir verða haldnir á Jónsmessu þann 26. júní.Hljómsveitin Kaleo og fleiri tónlistarmenn standa að baki tónleikunum en þeir eru haldnir með sérstöku leyfi Þingvallanefndar. Ekki eru allir á eitt sáttir við að einn helgasti staður þjóðarinnar og sameiningartákn sé lagður undir lokaðan viðburð sem greiða þarf inn á. MARKMIÐIÐ AÐ FÁ FLEIRI ÍSLENDINGA TIL ÞINGVALLA Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Vinstri grænna og fyrrverandi formaður Þingvallanefndar, hefur gert athugasemd við ákvörðun nefndarinnar, ekki sé rétt að fá Íslendinga á Þingvöll gegn því að greiða rúmar 20.000 krónur fyrir.Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flok