Drög að frumvarpi um stofnun rannsóknarnefndar sem á að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum hafa verið birt í samráðsgátt. Með hinni fyrirhuguðu lagasetningu á að tryggja að þeir einstaklingar sem telja sig hafa orðið fyrir óforsvaranlegri meðferð fái raunhæft tækifæri til að koma reynslu sinni á framfæri.