Ný könnun um stöðu barnafólks á vinnumarkaði sýnir sláandi niðurstöður að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, formanns BSRB. Þar kemur m.a. fram að 40% barnafólks á erfitt með að ná endum saman, 60% einstæðra foreldra geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og 12% hafa ekki efni á að greiða fyrir þá leikskólavistun sem þau þurfa.„Þessi könnun Vörðu sýnir með mjög skýrum hætti að staða barna; jöfn tækifæri eða möguleikar barna, fara eftir hjúskaparstöðu foreldra og uppruna þeirra,“ segir Sonja Ýr.Í könnuninni, sem gerð var meðal félagsfólks aðildarfélaga ASÍ og BSRB, sögðu tveir af hverjum þremur foreldrum að þjónusta síns sveitarfélags styddi ekki við barnafjölskyldur. SEGIR SVEITARFÉLÖGIN SKILA AUÐU „Við sjáum, á þessu tímabili, að leikskólagjöldin hafa verið að hækka og sömuleiðis fyrir frístund