Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Læknafélagið íhugar að leita til dómstóla vegna uppsagna á Landspítala

Læknafélag Íslands íhugar að leita til dómstóla vegna uppsagna og niðurfellinga stöðugilda á Landspítala í tengslum við hagræðingarkröfu stjórnvalda. Formaður þess segir aðgerðirnar stangast á við samkomulag, sem hafi verið virt áratugum saman, og jafnvel ganga þvert á lög.Landspítalinn segist þurfa fimm milljarða til að ná endum saman. Hann ætlar að fækka stöðugildum um 40, samhliða öðrum hagræðingaraðgerðum, til að mæta hallanum.Flestum verður fækkað með starfsmannaveltu en ellefu stöðugildi hafa verið lögð niður. Spítalinn vill meðal annars fækka starfsfólki í lágu starfshlutfalli til að geta ráðið fólk í hærra starfshlutfall.„Við veltum fyrir okkur hvort slík rök standist þessi lög, um að maður eigi ekki að beita slíka starfmenn lakari meðferð. Það virðist svo sannarlega vera tilfellið
Læknafélagið íhugar að leita til dómstóla vegna uppsagna á Landspítala

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta