Umdeildur spýtukofi í Vesturbæ Reykjavíkur fær að standa, að minnsta kosti fram í október.Það vakti nokkra athygli þegar greint var frá því að Reykjavíkurborg hygðist fjarlægja kofann sem börn smíðuðu í sameiningu við Lynghaga. Ástæðan var að kofinn væri ekki öryggisvottaður.„Það var í rauninni bara misskilningur og eitthvað sem ætti ekki að þurfa,“ segir Anna Kristín Blöndal Jóhannsdóttir, íbúi á Lynghaga og foreldri barna sem tóku þátt í kofasmíðinni. „Það að flokka þetta sem leiktæki er ekki rétt af því þetta er smíðakofi.“Anna Kristín segir að samkomulag hafa náðst við borgina um að kofinn fái að standa.„Þetta er svona leyfi, sem allir borgarbúar geta sótt um, sem er að hafa afnot af borgarlandi í einhvern tíma. Við sóttum um það og fengum leyfið samþykkt.“Það var veitt fram í október.