Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, sakar Rússlandsher um að hafa skotið 800 drónum að landinu síðan á miðnætti og drepið sex manns. Tugir eru særðir. Þá segja stjórnvöld í Úkraínu að Rússar hafi gert árásir á mikilvæga innviði, svo sem lestarkerfi, orkuinnviði, opinberar byggingar og á borgaraleg skotmörk. Þetta var fyrsta stóra árás Rússlandshers eftir stutt vopnahlé um síðustu helgi sem Bandaríkin höfðu milligöngu um. Því lauk á mánudag.Framan af allsherjarinnrás Rússlandshers var mestur þungi í árásum á nóttunni. Síðustu mánuði hefur verið meira um árásir að deginum til.Zelensky telur það ekki tilviljun að Rússar geri svo umfangsmiklar árásir í dag, sama dag og Trump Bandaríkjaforseti kom til Kína. Rússar vilji draga athyglina frá þeim fundi á kostnað almennra borgara í Úkraínu. Fyrr