HASAR - NÝJASTA TÍSKA Fyrsta breiðskífa rokk- og rólsveitarinnar HASAR kom út á laugardag og er 11 laga plata sem að sögn sveitarinnar inniheldur „bara bensín og engar bremsur. Sprengjur og eldur, vagg, velta og vangaveltur. Er það sem er í gangi í kringum okkur málið? Hvernig tekst maður á við eigin tilfinningar og hvernig finnur maður losun og innri frið?" GULUR BÍLL - ! SON ÁGÚST Gulur Bíll er fjögurra manna sveit úr Reykjavík og er ! Son Ágúst fyrsta lagið sem heyrist af væntanlegri plötu sem kemur út í lok maí og heitir Ávanar. Lagið ! Son Ágúst segja þeir að sé popprokk-smellur af bestu gerð en sveitina skipa þeir Birgir Hansen, Elís Svavarsson, Emil Svavarsson og Ástvaldur Axel Þórisson. BENEDIKT ARNAR - Á HEILANUM Í KVÖLD Á heilanum í kvöld er nýtt lag eftir þá Benedikt Arna