Jón Mikael Jónasson hefur verið ráðinn forstjóri Nathan hf. og tekur hann til starfa hjá fyrirtækinu í júní nk. Jón tekur við forstjórastöðunni af Ara Fenger, sem hefur verið forstjóri félagsins síðastliðin 18 ár. Samhliða breytingunum mun Ari taka við sem stjórnarformaður félagsins.