Hæstiréttur Suður-Karólínu hefur fellt úr gildi dóm gegn Alex Murdaugh, sem var árið 2023 dæmdur fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Líklega verður réttað yfir honum aftur vegna morðanna en Murdaugh, sem er 57 ára gamall, mun þó líklega ekki sleppa úr fangelsi, þar sem hann hefur verið dæmdur fyrir önnur brot eins og umfangsmikinn fjárdrátt.