Lögmaður Írisar Helgu Jónatansdóttur fór fram á að réttarhöld yfir henni væru lokuð almenningi. Bæði saksóknari og réttargæslumenn neituðu að fallast á það og því fer fram þinghald næstkomandi mánudag þar sem réttað verður sérstaklega um þennan hluta málsins. Íris Helga hefur verið ákærð fyrir umsáturseinelti, brot á barnaverndarlögum, rangar sakargiftir, skjalafals, hótanir og ærumeiðandi aðdróttanir. Ákæran er óvenjumikil að...