Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki mynda meirihluta með Samfylkingunni eftir borgarstjórnarkosningarnar á laugardag, ef marka má yfirlýsingu Brynjars Níelssonar, fyrrverandi þingmanns og frambjóðanda í þriðja sæti lista Sjálfstæðismanna. Hann sagðist „skynja áhyggjur margra“ yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að mynda meirihluta með Samfylkingunni, sem nú hefur yfir að ráða borgarstjórastólnum. „Ég treysti mér til að fullyrða að það verður ekki,“ segir Brynjar á...