Landsréttur mildaði í dag refsingu Stefáns Blackburn og Lúkasar Geirs Ingvarssonar í 16 ára fangelsi. Matthías Björn Erlingsson hlaut 12 ára fangelsisdóm.Áður höfðu þeir Stefán og Lúkas Geir verið dæmdir í 17 ára fangelsi í Héraðsdómi vegna aðildar þeirra að andláti Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, frelsissviptingu, fjárkúgun og ráni.Matthías Björn var áður dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir sömu sakir í héraðsdómi.Einnig var felldur dómur yfir 18 ára pilti og tvítugri stúlku sem tengjast málinu.Pilturinn var sýknaður fyrir Landsrétti en stúlkan dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.Pilturinn var áður dæmdur í héraðsdómi í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti í málinu. Stúlkan var sýknuð í héraði af aðild að frelsissviptingu og ráni. Stúlkan hringdi í Hjörleif og lokkaði han