Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Lag fyrir fólk sem elskar Super Mario

Hljómsveitin Píla var að gefa út lagið Annað líf og sagði Popplandi frá. Eftir þriggja ára undirbúning er hljómsveitin loksins tilbúin að deila öðru lagi með heiminum. „Sum þurfa bara meiri tíma en önnur,“ segja liðsmenn sveitarinnar.Pílu skipa þau Halldór Eldjárn, Hafsteinn Þráinsson og Rakel Sigurðardóttir. Sumir myndu kalla Pílu súpergrúppu en þau myndu ALDREI kalla sig það sjálf. Þau eru bara þrír vinir sem elska að gera tónlist saman mjög hægt, borða samlokur og dilla sér.„Annað líf er lag fyrir vorið, brotin hjörtu sem þarf að tjasla saman, hlaupara og fólk sem elskar Super Mario.“Hlustaðu á lagið í spilaranum hér fyrir ofan.
Lag fyrir fólk sem elskar Super Mario

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta