Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn til höfuðborgar Kína, Beijing, og fundar á morgun með forseta landsins, Xi Jinping. Þetta er í fyrsta sinn í nær áratug sem forseti Bandaríkjanna heimsækir Kína.Með Trump í för eru Elon Musk, hæstráðandi Tesla, og Jensen Huang, framkvæmdastjóri Nvidia. Í þjóðaröryggisskyni hafa stjórnvöld í Bandaríkjunum bannað Kína að kaupa tölvuflögur sem fyrirtækið framleiðir og nýttar eru í gervigreind. HLAUT HLÝJAR MÓTTÖKUR Í BEIJING Trump og sendinefnd hans hlutu hlýjar móttökur við komuna til Beijing í morgun. Rauðum dregli var rúllað út og Trump fékk afhent blóm við komuna. Meðfram rauða dreglinum stóðu um 300 börn sem veifuðu litlum fánum ríkjanna.Trump skrifaði á samfélagsmiðla á leiðinni að hann ætlaði að biðja Xi forseta Kína að opna landið svo að „al