Brynjar Leó Hjartarson var undir lok síðasta mánaðar dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku og stuðla að því að hún kæmi sér undan valdi og umsjá barnaverndarnefndar. Hann var þá tvítugur.Brynjar Leó var sakfelldur fyrir að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna í fjölda skipta þegar hún var fjórtán ára. Hann beitti hana ólögmætri nauðung og nýtti sér yfirburði sína sökum aldurs- og þroskamunar og þess að stúlkan var háð fíkniefnum og lyfjum. Hann var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í bætur.Brynjar Leó neitaði sök. Hann sagðist hafa talið að stúlkan væri eldri en hún var og kvaðst ekki hafa vitað að hún væri að strjúka úr fóstri. Skilaboð frá lögreglumanni til Brynjars Leós staðfestu að hann var upplýstur um að hún