Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

40% foreldra ná illa endum saman

40% barnafólks á erfitt með að ná endum saman, 60% einstæðra foreldra geta ekki mætt óvæntum útgjöldum og 12% hafa ekki efni á að greiða fyrir þá leikskólavistun sem þau þurfa. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem Varða - Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins gerði meðal félagsfólks í ASÍ og BSRB og birt var í dag.Þar kemur m.a. fram að þriðjungur foreldra í þessum tveimur stéttarfélögum býr við það sem kallast skortur á félags- og efnislegum gæðum, en í því felst meðal annars að geta ekki greitt reikninga á eindaga, geta ekki sinnt nauðsynlegu viðhaldi á heimili, geta ekki hitt fjölskyldu eða vini a.m.k. mánaðarlega eða borðað staðgóða máltíð annan hvorn dag. GETA EKKI GREITT FYRIR ÞÁ DAGVISTUN SEM ÞARF 12% foreldra geta ekki greitt fyrir eins langan vistunartíma í leikskóla og þörf er á,
40% foreldra ná illa endum saman

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta