„Ef ég ætti lítil börn í dag myndi ég frekar vilja að þau reyktu en að vera ein á samfélagsmiðlum.“ Þessi orð lét starfandi forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, falla á alþjóðlegri ráðstefnu um gervigreind og aðgengi barna að henni í Kristjánsborgarhöll í gær. ÚTSKÝRIR AFSTÖÐU SÍNA OG HARMAR ORÐAVALIÐ Síðar hefur Frederiksen beðist afsökunar á orðalaginu. Í færslu á samfélagmiðlum segir hún að auðvitað ættu börn og ungmenni ekki að byrja að reykja. „Þess vegna hefði ég átt að segja eitthvað annað til að undirstrika skoðun mína,“ segir hún í færslunni.Þá segir Frederiksen að rétt eins og börn ættu ekki að reykja, ættu þau ekki að fá að vera ein á netinu þar sem þau eigi á hættu á að sjá skaðlegt myndefni og geta lent í samskiptum við fólk með illt í huga. Því ætti að setja jafn