Greiningardeild Landsbankans spáir því að stýrivextir hækki um 0,25 prósent í næstu viku. Þetta rökstyður hún með því að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar þrálátar. Peningastefnunefnd fer yfir stöðuna í næstu viku og tekur ákvörðun um hversu háir stýrivextir skuli vera. Ákvörðunin verður kynnt á miðvikudag. Stýrivextir hækkuðu úr 7,25 í 7,50 prósent við síðustu vaxtaákvörðun. Landsbankinn spáir því að verðbólga hjaðni í maí og verði 4,9 prósent. Íslandsbanki telur að hún standi óbreytt í 5,2 prósentum.Merki Seðlabankans.RÚV / Ragnar Visage