Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrjú sveitarfélög hækkuðu frístund umfram verðbólgu

Gjaldskrá sveitarfélaga fyrir frístund hjá grunnskólabörnum hækkaði um allt að 37 prósent milli áranna 2023 og 2026, samkvæmt nýrri úttekt Alþýðusambands Íslands. Þar er miðað við að barn nýti þjónustuna í um þrjár klukkustundir á dag og fái síðdegishressingu. Verð var kannað í fjórtán sveitarfélögum.Mest var hækkunin í Reykjanesbæ, Fjarðabyggð og Garðabæ. Það eru einu sveitarfélögin sem hækkuðu gjaldskrá umfram verðbólgu. Mosfellsbær sker sig úr sem eina sveitarfélagið þar sem gjaldskráin lækkaði, um tvö prósent.Gjaldið er hæst í Garðabæ og á Seltjarnarnesi en lægst í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Reykjavík.Leikskóli í Reykjavík.Sólveig Klara
Þrjú sveitarfélög hækkuðu frístund umfram verðbólgu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta