Skýrsla starfshóps þáverandi dómsmálaráðherra vegna jarðhræringa og eldsumbrota á tímabilinu október 2023 til nóvember 2024 kom út í morgun. Starfshópurinn hafði það verkefni að skoða aðgerðir eða aðgerðaleysi viðbragðsaðila og gera ábendingar um það sem betur hefði mátt fara. Starfshópinn skipuðu þau Hafsteinn Dan Kristjánsson lagaprófessor sem formaður, Kjartan Þorkelsson, fyrrum lögreglustjóri á Suðurlandi, og Sóley Kaldal, áhættu- og öryggisverkfræðingur. VIÐBRAGÐSAÐILAR UNNU ÞREKVIRKI Skýrslan telur 417 blaðsíður og fer meðal annars sérstaklega yfir hættumat og viðbragðsáætlun, almannavarnastig, áhættumat, banaslysið 10. janúar 2024, rýmingar og fyrirmæli um brottflutning, verðmætabjörgun íbúa og upplýsingagjöf, verðmætabjörgun í tengslum við mikilvæga innviði, aðgangstakmarkanir a