Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kölluð út tvisvar sama daginn vegna skipa í vanda

Skipverjar á björgunarskipinu Björgu á Snæfellsnesi stóðu í ströngu í gær þar sem þeir þurftu tvisvar að fara út til aðstoðar skipum sem höfðu fengið veiðarfæri í skrúfuna.Skipið var kallað út með mesta forgangi í hádeginu í gær þegar Ólafur Bjarnason frá Ólafsvík fékk veiðarfæri í skrúfuna undan Búlandshöfða og rak hægt að landi. Skipið var eina og hálfa sjómílu frá landi þegar Björg var kölluð út. Þá var óttast að skipið kynni að stranda.Björg var lögð af stað út úr höfninni sjö mínútum eftir útkall og stímdi á fullu í átt að Búlandshöfða. Þegar að Ólafi Bjarnasyni var komið 20 mínútum síðar var hann aðeins 0,7 sjómílur frá landi. Taug var komið í Ólaf Bjarnason og hann dreginn í höfn í Ólafsvík.Ekki gafst löng hvíld eftir þetta því upp úr klukkan ellefu í gærkvöld barst hjálparbeiðni fr
Kölluð út tvisvar sama daginn vegna skipa í vanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta