Atvinnuleysi í apríl var 4,6 prósent, aðeins minna en í mars þegar það var 4,6 prósent. Atvinnuleysið er þó öllu meira en í apríl í fyrra þegar það var 3,9 prósent.Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. 9.385 voru án vinnu í apríl að meðaltali, 5.598 karlar og 3.787 konur. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 7,5 prósent, en minnst á Norðurlandi vestra, 1,8 prósent. Atvinnuleysi minnkaði milli mánaða í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum.Mest var atvinnuleysið í verslun og vöruflutningum, því næst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.Ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur. Ferðaþjónusta er í sjötta sæti yfir atvinnugreinar þar sem flestir eru atvinnulausir.RÚV / Ragnar Visage