Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vænlegra að síga eftir Lúðvík en að beita öðrum aðferðum

Verktakafyrirtækið COWI hefur skilað af sér niðurstöðum um hvaða aðferðir hentuðu best til að komast að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Fyrirtækið telur að best væri að síga eftir honum og að það væri betri kostur en að grafa í jörð eða nota sprengjur.Greint er frá þessu í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekur endanlega ákvörðun um hvort reynt verði að ná Lúðvík upp eða ekki. Embættið er að fara yfir minnisblaðið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.Starfsmenn COWI segja að best væri að skipta leit í nokkur skref. Það fyrsta yrði sjónleit þar sem handafl eitt yrði notað til að færa jörð til. Í næsta skrefi yrðu handverkfæri og loftpúðar notuð. Ekki er talið rétt að nota
Vænlegra að síga eftir Lúðvík en að beita öðrum aðferðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta