Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvorki sérlega hvasst né hlýtt

Rólegheitabragur verður á veðrinu í dag þar sem blæs dálítið og hiti verður aðeins yfir frostmarki. Á lofti má sjá ský lengst af og þau eiga sums staðar eftir að kreista úr sér einhverja úrkomu.Þau sem vilja meiri tilþrif í veðrinu þurfa að bíða fram á föstudag, þá er útlit fyrir strekkingsvind vestast á landinu og víða rigningu vestan til.Veðurspáin er svohljóðandi:Breytileg átt þrír til tíu í dag og á morgun, lengst af skýjað og sums staðar dálítil úrkoma. Hiti 2 til 10 stig yfir daginn, svalast í innsveitum norðaustan- og austanlands.
Hvorki sérlega hvasst né hlýtt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta