Kosningapróf RÚV leiðir í ljós djúpstæðan ágreining á milli framboðanna ellefu sem bjóða fram í Reykjavík. Þetta á ekki síst við um skipulags- og leikskólamálin.En það eru nokkur mál sem nánast enginn ágreiningur er um og ættu, standi framboðin við orð sín, að koma til framkvæmda á næsta tímabili. Það á til að mynda við um Miklubrautarstokkinn sem er hluti af samgöngusáttmálanum, jafnvel þótt eitt framboðanna vilji ekki taka þátt í honum líkt og lesa má í fréttinni hér að neðan.Eina spurningin sem allir flokkar svöruðu á sama veg var fullyrðingin um að einkavæða ætti Orkuveitu Reykjavíkur. Allir flokkar sögðust mjög ósammála þeirri fullyrðingu. Sú spurning var vissulega tiltölulega opin því Orkuveitan á vissulega nokkur dótturfélög á borð við Ljósleiðarann og Carbfix og því kunna einhver f